Bókfært tap Skipta á árinu 2010 nam 2,5 milljörðum króna. Félagið birti uppgjör sitt í dag og segir í tilkynningu að tapið skýrist einkum af virðisrýrnun óefnislegra eigna, sem nam 4,9 milljörðum króna. Tap félagsins nam 10,2 milljörðum króna árið áður.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 5,1 milljarði króna samanborið við 8,7 milljarða árið áður. Lækkun EBITDA skýrist meðal annars af því að Skipti seldu Sirius IT auk þess sem varúðarfærsla vegna gerðardóms og sektir höfðu áhrif á afkomu ársins. EBITDA hlutfallið var 15% en var 20% sé ekki tekið tillit til einskiptiskostnaðar.

Sala nam 33,6 milljörðum króna samanborið við 39,7 milljarða árið áður. Lækkunin skýrist einkum af því að í júlí seldi Skipti Sirius IT, sem fór því út úr samstæðunni frá þeim tíma.

Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 44,3 milljörðum um áramót en voru 54,4 milljarðar árið áður. Lækkunin skýrist einkum af sölu eigna.Í tilkynningunni segir ennfremur að Skipti hf. hafa í öllum meginatriðum lokið samningum við lánveitendur félagsins og er vinna við skjalagerð á lokastigi. Öll lán félagsins eru í skilum og á árinu 2010 greiddu Skipti 7,9 milljarða króna í afborganir og vexti af lánum.

Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 21 % og eigið fé er 22,3 milljarðar króna. Í tilkynningunni segir Kristín Guðmundsdóttir, forstjóri Skipta hf.: „Árið 2010 fór ágætlega af stað og fyrstu mánuði ársins varð ekki vart við mikinn samdrátt hjá dótturfélögum Skipta á Íslandi. Það breyttist þegar líða tók á vorið og eftirspurnin minnkaði sem setur svip sinn á afkomu Skipta. Hins vegar hefur félagið unnið markvisst að lækkun kostnaðar undanfarin ár sem dregur úr áhrifum tekjulækkunar á afkomuna. Skipti hafa selt stærstan hluta af starfsemi sinni utan Íslands með umtalsverðum söluhagnaði. Verkefnið framundan er að halda áfram að einbeita sér að kjarnastarfsemi félagsins á Íslandi.“

Afkoma Skipta .