Brynjólfur Borgar Jónsson hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá Capacent. Brynjólfur fæst við sérhæfðar tölfræðilegar greiningar, einkum í sölu- og markaðsmálum. Brynjólfur er BA í sálfræði frá Háskóla Íslands og með MSc-gráðu í tölfræði og aðgerðarannsóknum frá University of the West of England í Bristol.

Hann starfaði sem auglýsingaráðgjafi hjá Morgunblaðinu 1998-2000, sem markaðsrannsóknastjóri hjá Norðurljósum 2000-2002, við greiningu og rannsóknir hjá Arkenford Ltd í Bretlandi 2004-2005 og við greiningu á viðskiptabankasviði Landsbankans 2006-2009. Brynjólfur er giftur Maríu Reynisdóttur og eiga þau eitt barn.