Bylgja Dís Erlingsdóttir
Bylgja Dís Erlingsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Bylgja Dís Erlingsdóttir hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Skólamatar. Um er að ræða nýja stöðu en Bylgja hefur starfað sem yfirbókari og launafulltrúi hjá Skólamat frá árinu 2013 ásamt því að vera hluti af stjórnendateymi Skólamatar.

Ráðning Bylgju er fjórða breytingin á stjórnendateymi Skólamatar á skömmum tíma. Fyrr á árinu var Katla Hlöðversdóttir ráðin sem markaðsstjóri Skólamatar. Í fyrra voru gerðar tvær breytingar á stjórnendum Skólamatar, Rúnar Már Smárason tók við sem yfirmatreiðslumeistari og Sólmundur Einvarðsson sem rekstrarstjóri.

Breytingarnar eru allt liður í  stuðningi við þann mikla vöxt og fjölbreytileika sem starfsemi Skólamatar hefur tekist á við að undanförnu segir í tilkynningu, sem og til að efla fyrirtækið enn frekar í framtíðaráskorunum og tækifærum.

Skólamatur er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum í leik- og grunnskólum. Skólamatur þjónustar um 13.000 nemendur á degi hverjum í rúmlega 50 mötuneytum á suðvesturhorni landsins. Hjá fyrirtækinu starfa 150 starfsmenn.