Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines mun fljúga daglega milli Íslands og New York næsta sumar, líkt og síðastliðið sumar, en hefur nú lengt ferðatímabilið um rúman mánuð og byrjar að fljúga 2. maí 2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Tölur Ferðamálastofu sýna að ferðamönnum frá Bandaríkjunum til Íslands fjölgaði um nærri 30% á síðasta ári miðað við 2013. Við erum stolt af því að taka þátt í þessum vexti og sömuleiðis að geta boðið Íslendingum valkost á leið þeirra til Bandaríkjanna. Frá Kennedyflugvelli bjóðum við jafnframt tengiflug til 60 áfangastaða í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku og Karabíska hafinu,“ segir Perry Cantarutti, forstjóri Delta í Evrópu, Austurlöndum nær og Afríku.

Þetta er fimmta sumarið í röð sem Delta býður upp á flug milli Keflavíkurflugvallar og JFK í New York. Flogið verður með Boeing 757 þotu félagsins, en flugleiðin er hluti af sameiginlegu leiðarkerfi Delta og Air France-KLM.