Eignarhlutur Eimskipafélagsins[ HFEIM ] í Icelandic Group [ IG ]lækkaði um 5,1 milljón evra eða 560 milljónir króna á fyrsta fjórðungi 2008, að því er fram kemur í uppgjörsgögnum.

Eimskipafélagið á 7,5% hlut í Icelandic Group, samkvæmt hluthafaskrá. Markaðsvirði hlutarins er 650 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá M5.

Icelandic Group hefur lækkað um 44% það sem af er þessu ári. Samkvæmt fjárhagsdagatali Eimskipafélagsins, lauk fyrsta fjórðungi 31.janúar síðastliðinn.

Stefán Ágúst Baldursson, forstjóri Eimskipafélagsins, situr í stjórn Icelandic Group.