Heildareignir innlánsstofnana námu 2.930,9 milljörðum í lok febrúar 2013 og hækkuðu um 2,1 milljarða í mánuðinum. Af heildareignum námu innlendar eignir 2.533,2 milljörðum og lækkuðu um 8,5 milljarða Erlendar eignir innlánsstofnana námu 397,7 milljörðum og hækkuðu um 10,6 milljarða í febrúar. Kemur þetta fram í tölum Seðlabankans.

Skuldir innlánsstofnana námu 2.414,3 milljörðum í lok febrúar og lækkuðu um 9,5 milljarða í mánuðinum. Innlendar skuldir námu 2.290,6 milljörðum og lækkuðu um 10,2 milljarða. Erlendar skuldir innlánsstofnana námu 123,7 milljörðum og hækkuðu um 634 milljarða í febrúar. Eigið fé innlánsstofnana nam 516,6 milljörðum í lok febrúar.

Útlán Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankans hf. eru í þessum tölum metin á kaupvirði þ.e. því virði sem þessir aðilar keyptu útlánasafnið á af fyrirrennurum sínum. Lánasöfnin eru endurmetin reglulega sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á virði einstakra lána. Breytingar á útlánasafni þessara aðila geta því stafað af endurmati á virði lána eða af raunverulegum lánahreyfingum.