Alls var 68 manns sagt upp í einni hópuppsögn í júlímánuði, samkvæmt tilkynningu frá Vinnumálastofnun. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Ekki kemur fram um hvaða fyrirtæki er að ræða. Þeir starfsmenn, sem sagt hefur verið upp, koma aðallega til með að missa vinnuna í október til desember á þessu ári.