Áform um byggingu álvers í Helguvík hafa ekki breyst segir í tilkynningu frá Norðuráli. Hægt var á framkvæmdum þar síðasta haust þegar íslensku bankarnir lentu í vandræðum og leita þurfti nýrra aðila við fjármögnun bæði álvers- og orkuframkvæmda.  Síðan hafa framkvæmdir verið samkvæmt áætlunum.

Íslenskir Aðalverktakar eru langt komnir með byggingu á undirstöðum kerskála fyrir fyrsta áfanga og íslenska verkfræðisamsteypan HRV vinnur að hönnun og hefur yfirumsjón með verkinu segir í tilkynningunni..

Tap Century á síðasta ári var fyrst og fremst vegna reiknaðra liða, s.s. skatta og afleiðusamninga.  Hagnaður var hins vegar af reglubundnum rekstri

Rekstur Norðuráls gekk vel í fyrra segir í tilkynningunni.  Álverið á Grundartanga framleiddi um 272.000 tonn af áli og var útflutningsverðmæti þess ríflega 60 milljarðar

Veruleg verðlækkun, sem orðið hefur á áli, hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á rekstrargrundvöll álvera og hefur Century þegar hætt framleiðslu í einu álveri í Bandaríkjunum sem komið var til ára sinna og því ekki lengur samkeppnisfært við núverandi áðstæður.  Staða Norðuráls er mjög traust enda er rekstur álversins á Grundartanga á heimsmælikvarða.  Brugðist hefur verið við erfiðum aðstæðum með lækkun kostnaðar og hagræðingu en engin áform eru uppi um niðurskurð framleiðslu hjá Norðuráli segir í tilkynningu.