Eva Margrét Ævarsdóttir hefur gengið til liðs við LEX Lögmannsstofu og mun hún leiða uppbyggingu á þjónustu LEX á sviði sjálfbærni og UFS-ráðgjafar. UFS stendur fyrir umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti (á ensku ESG). Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Eva Margrét er einn reyndasti ráðgjafi landsins á þessu sviði. Hún hefur um árabil sinnt ráðgjöf til fyrirtækja, m.a. á sviði sjálfbærni og ófjárhagslegrar upplýsingagjafar, ábyrgra fjárfestinga, grænna skuldabréfa og fleiri tegundum sjálfbærrar fjármögnunar,“ segir í tilkynningunni.

Eva Margrét er ekki ókunn hjá LEX lögmannsstofu en hún var lögmaður og einn eigenda stofunnar á árunum 2006-2013. Í kjölfarið starfaði hún sem lögmaður hjá Arion banka og vann þar m.a. við fjármögnun bankans, skráningu hans á markað og mótun stefnu í ábyrgum fjárfestingum.

Þá var Eva framkvæmdastjóri og einn af stofnendum RoadMap, nýsköpunarfyrirtækis í ráðgjöf í sjálfbærni og góðum stjórnarháttum. Hún veitti á tímabili forstöðu skrifstofu Samtaka atvinnulífsins í Brussel og starfaði sem lögfræðingur og nefndaritari hjá nefndasviði Alþingis.

Eva Margrét er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og LL.M gráðu frá Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu, auk þess sem hún hefur lokið stjórnendanámi frá IESE Business School á Spáni. Hún er gift Kolbeini Árnasyni, skrifstofustjóra og eiga þau eina dóttur.

„Þörfin fyrir þjónustu og ráðgjöf á sviði sjálfbærni, ekki síst á tímum örra breytinga í umhverfi fyrirtækja og fjárfesta, er sífellt að aukast. Auknar laga- og reglukröfur og væntingar hagsmunaaðila leiða til að þessi mál eru komin ofarlega á borð stjórnenda. Einnig felast í sumum tilfellum ný tækifæri á sama tíma og leitast er við að mæta áskorunum samfélagsins á tímum loftslagsbreytinga. Þessi nýja þjónusta fellur vel að núverandi þjónustuframboði LEX og þeim áherslum sem eru fyrir hendi hjá okkur og það er mikill fengur að fá Evu Margréti aftur í teymið okkar," er haft eftir Erni Gunnarssyni, framkvæmdastjóra LEX.