Verðbréfamarkaðir í Evrópu hækkuðu lítillega við opnun þeirra í morgun. FTSE vísitalan hækkaði um 0,2%, DAX um 0,5% og CAC-40 um 0,3%.

Hækkunin er meðal annars rakin til frétta í Bandaríkjunum um að stjórnvöld þar í landi séu tilbúin að dæla enn meira fé í hagkerfið.