Fíkniefnagæsla landsins eru maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2. Fréttastofan veitti fulltrúm Tollgæslunnar og fíkniefnadeild lögleglunnar viðurkenningu af þessu tilefni í dag.

Fordæmi eru fyrir því að stofnanir verði fyrir valinu en áður hefur fréttastofa Stöðvar 2 valið þyrlusveit varnarliðsins mann árisns sem og Landhelgisgæsluna.

Fíkniefnagæsla landsins þótti bera af að mati fréttastofunnar og hlýtur hún því þessa tilnefningu í ár. Það voru Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Kári Gunnlaugsson, fulltrúi Tollgæslunnar sem veittu viðurkenningunni viðtöku.