Bank Nederlandse Gemeenten (BNG) tilkynnti um fimm milljarða króna útgáfu jöklabréfa með gjalddaga í febrúar 2009 og 12,25% ávöxtunarköfu í dag. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans.

"BNG banki er í eigu ríkis og sveitarfélaga í Hollandi. Þetta er önnur tilkynningin á jafnmörgum dögum um útgáfu jöklabréfa en fyrsta skipti sem BNG leitar fjármagns með þessum hætti. Krónan styrktist strax í kjölfar tilkynningarinnar," segir greiningardeildin.

Nam styrkingin 0,25% og var krónan 110,8 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.