Finnur Ingólfsson hefur selt 15% hlut sinn í Icelandair Group fyrir um 4,9 milljarða króna, að því er fram kemur í tilkynningum til Kauphallarinar. Í kjölfarið mun Finnur láta af störfum sem stjórnarmaður hjá Icelandair.

Á sama tíma eykur Fjárfestingafélagið Máttur ehf. við hluts inn í Icelandair í 23,11% úr 11,11%.

"Þetta hefur verið afar ánægjulegur tími hjá Icelandair Group og mjög lærdómsríkur. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka samstarfsfólki mínu kærlega fyrir bæði vel unnin störf og þann mikla árangur sem náðst hefur upp á síðkastið. Framtíðin hjá Icelandair er mjög björt,? segir Finnur í fréttatilkynningu.

?Ég fékk mjög hagstætt verð fyrir hlutinn og ákvað ég því að selja og snúa mér að öðrum verkefnum. Hið góða verð sem boðið var endurspeglar betur en nokkuð annað hversu eftirsóknarverður fjárfestingakostur Icelandair Group er orðið. Framundan hjá mér eru fjölmörg verkefni á sviði fjárfestinga og sum þeirra eru afar spennandi. Ég kveð félagið með þakklæti í huga og horfi spenntur til nýrra verkefna,? segir hann.