Anna Sif Jónsdóttir, fjármálastjóri fasteignafélagsins Regins, ætlar að hætta störfum hjá fyrirtækinu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um tímasetningu starfsloka hennar, að því er fram kemur í tilkynningu tiil Kauphallarinnar.

Anna Sif seldi öll hlutabréf sín í Regin í gær. Hún átti 121.952 hluti og nam markaðsverðmæti þeirra við söluna 1,3 milljónum króna. Sölugengið var 10,71 króna á hlut.