Í gærkvöld var samkomulag um lífeyrismál undirritað af stjórn FÍF og fulltrúum Flugstoða.

Hvorir tveggja hafa lýst yfir ánægju með að samkomulagið sé í höfn svo hægt sé að snúa sér að daglegum rekstri á ný. Búist er við því að í dag, 4. janúar, muni þeir flugumferðarstjórar sem ekki hafa ráðið sig hjá Flugstoðum ganga til liðs við félagið og flugumferð á íslenska svæðinu fara í eðlilegt horf, segir í tilkynningu á heimasíðu Félags íslenskra flugumferðastjóra.