Jeffrey Skilling, fyrrverandi forstjóri orkurisan Enron, gæti mögulega losnað 10 árum fyrr úr fangelsi en dómur hans kveður á um. Wall Street Journal greinir frá því að samningaviðræður standi yfir við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna.

Skillings afplánar 24 ára dóm vegna brota í starfi sem forstjóri hins gjaldþrota Enron. Dómurinn féll árið 2006 og hefur Skilling verið í fangelsi síðan. Samkvæmt dómnum ætti Skilling að losna árið 2028. Lögmenn hans hafa áfrýjað hvað eftir annað í málinu frá því dómur féll.

Enron varð gjaldþrota árið 2001 og er gjaldþrotið er stærsta gjaldþrot fyrirtækis í Bandaríkjunum frá upphafi.

Saksóknara varð á

Í júní 2010 komst Hæstiréttur Bandaríkjanna að þeirri niðurstöðu að saksóknari í Enron málinu hafi misbeitt ákærulið sem varðar reglu sem kallast á frummálinu "honest services fraud". Er þetta ein tegund fjársvika.

Deilan í máli Skilling snerist um hvort einstaklingur þyrfti sjálfur að hagnast á verknaðnum. Reglan hefur mikið verið gagnrýnd þar sem hún er lítt skilgreind og færir saksóknurum mikið svigrúm. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að saksóknarinn í máli Skilling hafi notað lagaregluna með óeðlilegum hætti.