Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,2% milli maí og júní 2019. Sjávarafurðir hækkuðu um 4,4%, annar iðnaður hækkaði um 1,8% og afurðir stóriðju lækkuðu um 0,5%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 6,7% frá júní 2018 til júní 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 21,1%, annar iðnaður hækkaði um 13,2%, matvæli hækkuðu um 4,7% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 5,5%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,9% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 6,1%.