Freyr Einarsson, yfirmaður sjónvarps hjá 365 miðlum, hefur hætt störfum. Hann var áður yfir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis, og íþróttum 365 miðla. Hann tók við starfinu af Pálma Guðmundssyni í júní í fyrra í kjölfar skipulagsbreytinga.

Ekki hefur náðst í Frey vegna málsins.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365 miðla, segir í samtali við VB.is að starfslok Freys séu í samræmi við þær breyttu áherslur sem fylgi nýju fólki og vísaði til þess sem hann sagði þegar greint var frá því á mánudag að hann hafi sjálfur sest í forstjórastólinn í stað Ara Edwalds.