Slitastjórn Landsbankans hefur greitt 432 milljarða króna til þeirra sem eiga forgangskröfur í þrotabú gamla bankans. Þetta jafngildir einum þriðja af forgangskröfum, sem að mestu eru Icesave-kröfur.

Fram kemur á vef slitastjórnar og skilanefndar bankans að greitt hafi verið í blandaðri mynt, evrum, breskum pundum, dölum og krónum. Það er í samræmi við þá áætlun slitastjórnarnar og skilanefndar bankans sem kynnt var á síðasta kröfuhafafundi bankans.