Gengi hlutabréfa Haga hækkaði um 0,94% í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa TM um 0,48% og Eimskips um 0,2%.

Á móti lækkaði gengi bréfa stoðtækjaframleiðandans Össurar um 1,11%, fasteignafélagsins Regins um 0,63% og Icelandair Group um 0,30%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,19% og endaði hún í 1.059 stigum. Heildarviðskipti í Kauphöllinni nam 789 milljónum króna. Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group eða upp á tæpar 250 milljónir króna. Fremur lítil viðskipti voru með hlutabréf Vodafone eða fyrir rúmar 64 milljónir. Engin breyting varð á gengi bréfa félagsins. Í gær féll gengi þeirra um 12%. Velta með hlutabréfin í gær nam 211 milljónum króna.