Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 1,62% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Össurar lækkaði um ein 6,15%, gengi Eimskips lækkaði um 3,09% og bréf Regins lækkuðu um 1,69%. Reyndar var velta með bréf Össurar í minna lagi, eða um 7,5 milljónir króna. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,94% og bréf Marels hækkuðu um 0,34%.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 1,2 milljarði króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,24% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,32% og sá óverðtryggði um 0,02%. Heildarvelta skuldabréfa í vísitölunni nam 3,6 milljörðum króna.