Gengisvísitalan er nú 160,4 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,8% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan styrktist um 0,5% í gær en veiktist strax við opnun gjaldeyrismarkaða í morgun eins og áður hefur komið fram.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,4 stig en var í gær 159,2 stig.

Krónan hefur þó veikst um 1,2% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 85 krónum, Evran í 122,7 krónum og Sterlingspundið í 150,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,5 krónum, japanskt jen í 0,78 krónum og danska krónan í 16,5krónum.