Google hefur ákveðið að hækka laun allra starfsmanna sinna um 10% í byrjun næsta árs. Þá mun fyrirtækið einnig gefa öllum 23 þúsund starfsmönnum sínum þúsund dollara jólabónus, jafnvirði um 111 þúsund króna.

Eric Schmidt framkvæmdarstjóri Google tilkynnti starfsmönnum um launahækkanirnar með tölvupósti. Í frétt CNBC segir að Google hafi að öðru leyti lítið vilja tjá sig um hækkanirnar við fjölmiðla.