Samtals hafa 20 milljarðar í krónubréfum fallið á gjalddaga í ágúst og er framhald á nokkuð stórum gjalddögum á komandi mánuðum. Þannig munu 85 milljarðar falla á gjalddaga fram að áramótum og 257 milljarðar næsta árið.

Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum Kaupþings en þar er greint frá því að í dag voru fimm milljarðar í krónubréfum á gjalddaga í dag og var ekki framlengt í útgáfunni.

„Það hafði hins vegar engin teljandi áhrif á gengi krónunnar enda ekki ólíklegt að fjárfestar hafi gert ráð fyrir að af framlengingunni yrði ekki,“ segir Greiningadeild Kaupþings í Hálffimm fréttum.

Þá segir Greiningadeildin að skortur á lausafé hefur gert útgefendum krónubréfa erfitt fyrir að nýta sér háa íslenska vexti í gegnum gjaldeyrisskiptamarkað og hefur hvatinn fyrir útgáfu nýrra krónubréfa því verið takmarkaður síðan lausafjárskorturinn skall á af öllu afli.

„Helst hafa fjárfestar snúið sér að ríkisskuldabréfum til að nýta sér vaxtamun milli hagkerfa,“ segir í Hálffim fréttum.

„Útgefendur krónubréfa munu sjá sér lítinn hag í því að framlengja bréfum sínum þegar nær dregur gjalddaga snúi lausafjárskorturinn ekki til betri vegar í tæka tíð. Gæti það í raun þýtt að krónan haldist veik meðan útistandandi krónubréf mjatla nær gjalddaga fari svo að alþjóðleg lausafjárþurrð lagast ekki.“

Þá segir Greiningardeild Kaupþings að Seðlabankinn gæti mætt slíkri atburðarrás með aukinni útgáfu skuldabréfa en stór galli við slíka aðgerð væri enn aukinn skortur á krónum sem myndi þrengja að fjármálastofnunum og takmarka frekar útlán innanlands með tilheyrandi hættu á samdrætti.