Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir var tekjuhæsti fasteignasalinn landsins í fyrra og námu tekjur hennar að jafnaði rúmlega 2,8 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Næst tekjuhæsti fasteignasalinn á eftir Guðbjörgu var Dagbjartur Willardsson en mánaðartekjur hans námu að jafnaði 1,7 milljónum á mánuði.
Fimm tekjuhæstu fasteignasalarnir árið 2018:
- Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, sölustj. Trausta fasteignastölu 2.824 milljónir
- Dagbjartur Willardsson, fasteignasali. Fast. Reykjavíkur 1.746 milljónir
- Arnar Birgisson, framkvæmdastj. Eignaver 1.378 milljónir
- Brandur Gunnarsson, fasteignasali. Borg 1.250 milljónir
- Einar Páll Kjærnested, fasteingasali. Fasteignas. Mosfellsb. 1.24 milljónir
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .