Hagamelur ehf. hefur tekið við öllum hlutabréfum Búvalla slhf. í Högum eftir sameiningu félaganna tveggja. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að um 95.667.460 hluti í félaginu sé að ræða, eða samtals um 7,86% hlutafjár.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að eigendur félaganna tveggja séu þeir sömu og því hafi þau verið sameinuð. Hagavellir eru að meirihluta í eigu þeirra Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar.