Hagnaður McDonalds skyndibitakeðju nam 1,16 dollurum á hlut á fjórða ársfjórðungi 2010. Er það litlu minna en greiningaraðilar spáðu.

Sala McDonalds nam 6,21 milljarði dala, samanborið við 5,97 milljarða í fyrra. Á alþjóðavísu jókst sala um 5% og um 4,4% Bandaríkjunum.

McDonalds er ekki lengur á Íslandi. Óvíst er hvort það hafði áhrif á afkomutölur.