Shell, stærsta olíufélag Evrópu, tilkynnti um 5,7 milljarða dala hagnað á öðrum ársfjórðungi. Það er um 13% lækkun frá sama ársfjórðungi í fyrra.

Samkvæmt frétt Bloomberg er skýringa á minni hagnaði fyrst og fremst að finna í lægra olíuverði og viðhaldi olíuborpalla félagsins.Búist var við 6,3 milljarða dala hagnaði og niðurstaðan því undir væntingum.