Hagnaður Singer & Friedlander á fyrstu sex mánuðum ársins var 25 milljónir punda samanborið við 15 milljónir árið áður. Hagnaður af bankastarfsemi fyrir skatta og óreglulega liði var 16 milljónir punda samanborið við 11 milljónir punda árið áður og er það 40% aukning. Stjórnin hefur samþykkt að borga út þriggja pensa arð á hlut.