Afkoma Akureyrarbæjar var neikvæð um 199,7 milljónir króna í fyrra. Þetta er þveröfugt við áætlanir sem gerðu ráð fyrir 62,9 milljóna króna afgangi af rekstri bæjarins. Fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ að reksturinn hafi gengið þokkalega og heildarniðurstaðan í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir, utan reiknaðra liða, einna helst áfallnar lífeyrisskuldbindingar, sem höfðu veruleg áhrif á niðurstöðuna.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Þar undir eru Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóður gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.  Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.155,3 milljónum króna er 92 milljónum króna hærra en áætlun hafði gert ráð fyrir. Þetta er jafnframt 267 milljónum króna meira en ári fyrr.  Handbært fé frá rekstri nam 2.016,1 milljónum króna.

Tæpar 400 þúsund í meðallaun hjá bænum

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 7,3 milljarðar króna í fyrra. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.527 og nema meðallaun hjá bænum því 398 þúsund krónum á mánuði. Þá kemur fram í uppgjöri bæjarins að laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, án aukinna lífeyrsiskuldbindinga,  í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 56% en 59,4% með aukningu áfallinna lífeyrisskuldbindinga. Gjaldfærð lífeyrisskuldbinding á árinu nam 491,5 milljón króna.

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á  38,9 milljarða í lok síðasta árs. Þar af námu  eltufjármunir rúmum 4,3 milljörðum króna. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 22.555,7 milljónum króna. Þar af eru skammtímaskuldir þrír milljarðar rúmir. Í uppgjörinu segir að fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga  124% en var 130% árið áður.

Ársreikningur Akureyrarbæjar