Í dag var tilkynnt að litli prinsinn, sonur Kate Middleton og Vilhjálms Bretaprins hefur fengið nafnið George Alexander Louis.

Prinsinn, sem er þriðji í erfðaröð bresku konungsfjölskyldunnar, fæddist 22. julí á St. Mary´s spítala í London. Hann var rúmar 15 merkur og gekk fæðingin vel að sögn talsmanns konungsfjölskyldunnar.

Vilhjálmur Bretaprins gaf út stutta yfirlýsingu í gær og sagði að þau hjónin gætu ekki verið hamingjusamari.