Kauphöllin á Íslandi mun heiðra minningu Þórðar Friðjónssonar, fyrrverandi forstjóra Kauphallarinnar, með þriggja mínútna þögn á mörkuðum kauphallar í dag klukkan 13:00.

„Viðskiptakerfinu verður ekki lokað en kauphallaraðilar eru vinsamlegast beðnir um að virða þessa þögn,“ segir í tilkynningu frá Kauphöll.