Heildarsala skuldabréfa í júlí 2008 nam um 10,5 milljörðum króna samanborið við 37,6 milljarða króna í sama mánuði ári áður.

Salan skiptist þannig að um 2,3 milljörðum króna var í formi verðtryggðra skuldabréfa og um 8,2 milljörðum króna var í formi óverðtryggðra skuldabréfa.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.