Hlutabréf hækkuðu lítillega í Evrópu í dag eftir að hafa lækkað töluvert í gær. Það voru olíu- og önnur orkufyrirtæki sem leiddu hækkanir að sögn Reuters fréttastofunnar.

Þannig hækkaði StatoilHydro um 2,7% en olíurisarnir Shell og BP um 1,6 og 2% svo dæmi séu tekin.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,6% eftir að hafa sveiflast frá 0,4% lækkun upp í 1,1% hækkun í dag. Vísitalan lækkaði um 2,4% í gær en hefur engu að síður hækkað um 0,5% það sem af er þessum mánuði.   Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,9%, í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 0,3% en í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan hins vegar um 0,2%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 0,4% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 0,2%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 1%, í Osló hækkaði OBX vísitalan um 1,6% og í Stokkhólmi OMXS vísitalan um 0,6%.