Heldur hægði á hækkun eignaverðs í október en tólf mánaða hækkun eignaverðsvísitölu KB banka fer úr 25,5% niður í 20,5%. Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum bankans. Ástæða þess liggur í að eignaverðsvísitalan lækkaði um 2,2% að raunvirði í október. Hlutabréfaverð lækkaði um 11,5% í október en svo mikil lækkun hefur veruleg áhrif á vísitöluna en hlutabréf vega um 20% í vísitölunni.

Einnig var gengi skuldabréfa fremur dapurt í október og hækkaði ávöxtunarkrafa skuldabréfa lítillega eða var óbreytt í mánuðinum. "Þannig var það einungis fasteignamarkaðurinn sem hækkaði að raunvirði. En fasteignaverð hækkaði um tæpt 1% og náði sú hækkun ekki að yfirvinna mikla lækkun á hlutabréfamarkaði. Líklegt er að heldur sé að draga úr á hækkun eignamarkaða en 12 mánaða hækkun eignaverðs hefur verið frá 18% upp í 25% frá miðju sumri 2003. Hækkun eignaverðsvísitölunnar síðastliðið eitt og hálft ár er miklu mun meiri en hækkun eignaverðs í síðustu efnahagsuppsveiflu. Mest náði eignaverðshækkunin 15% hækkun á tímabilinu frá áramótum 1999 fram til byrjun árs 2000. Ljóst er jafn langvarandi og mikil hækkun eignaverðs hefur töluverð áhrif á einkaneyslu í gegnum auðsáhrif. Bæði vegna söluhagnaðar á eignum, hærri eiginfjárstöðu og aukins veðrýmis eigna," segir í Hálffimm fréttum KB banka.