Hlutabréf í Kauphöllinni hækkuðu um 1,2% í dag í 4,3 milljarða króna viðskiptum. FL Group [ FL ] hækkaði mest, um 3,8%, þá Spron [ SPRON ], um 3,6%, og í þriðja sæti var Icelandair [ ICEAIR ], sem hækkaði um 2,8%. 365 [ 365 ] lækkaði mest, um 3,2%, Færeyjabanki [ FO-BANK ] lækkaði um 2,9% og Eik Bank [ FO-EIK ] um 2,5%.