Eysteinn Helgason framkvæmdastjóri Kaupás sagði í stuttu samtali við vb.is. að hann vildi ítreka það sem sagt væri í fréttatilkynningu fyrirtækisins frá því í morgun vegna húsleitar Samkeppnisstofnunnar og að Kaupás fagnaði rannsókninni.  “Húsleit Samkeppnisstofnunnar kemur ekkert á óvart í ljósi umræðunnar í samfélaginu undanfarið. Ef stofnunin telur nauðsynlegt að rannsaka málið með þessum hætti munum við aðstoða hana á allan mögulegan hátt og væntum um leið að niðurstaða fáist í málið sem fyrst. Við höfum ekkert að fela.” sagði Eysteinn.