Francois Hollande, forseti Frakklands, íhugar að höfða mál gegn tímaritinu Closer sem hélt því fram að hann væri í tygjum við 41 árs gamla leikkonu að nafni Julie Gayet. Hollande segir að fréttir um framhjáhaldið sé „árás á friðhelgi einkalífs“ en neitaði ekki ásökununum.

Closer fjallar um málið á sjö síðum í prentaðri útgáfu tímaritsins. Aftur á móti hefur vefútgáfan af umfjölluninni verið fjarlægð. Það er gert að ósk Closer.

BBC greindi frá.