Verð á hráolíu náði hámarki í gær en meginþorra dagsins kostaði tunnan um 103 bandaríkjadali.

Verðið lækkaði þó undir lok dags og kostaði tunnan 101,21 bandaríkjadali við lok markaða í New York.

Mikil eftirspurn er eftir olíu en að sama skapi hefur veikur dollari haft áhrif á olíuverð eftir því sem BBC greinir frá.