Hagnaður HS Veitna dróst saman um 3,1% á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins. Í fréttatilkynningu sem fylgdi uppgjörinu kemur fram að hagnaðarsamdrátturinn skýrist alfarið af hækkun fjármagnsliða upp á 150 milljónir króna og hækkun annarra langtímaskulda um 82 milljónir króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði jókst um 127 milljónir króna og tekjur jukust um 10,8% á milli ára.

Tekjur síðasta árs námu 5,3 milljörðum króna, þar af vegna raforkudreifingar og flutnings 2,9 milljarðar, vegna sölu og dreifingar á heitu vatni 1,9 milljarðar, 551 milljónir króna og 498 milljónir vegna annarrar starfsemi. Kostnaðarverð sölu hækkaði um 10,3% á milli ára en helsta kostnaðaraukningin á milli tímabila er orkukaup og flutningsgjöld raforku um 240 milljónir króna á milli ára eða um 14,6%.

Í tilkynningunni segir að fjárhagsstaða félagsins sé sterk og að horfur séu góðar. Áfram verður unnið að stækkun veitukerfa félagsins eftir því sem þörf krefur til að tryggja viðskiptavinum hámarks afhendingaröryggi.