Undirritaður hefur verið samningur um kaup Húsasmiðjunnar hf. á rekstri KB Byggingavara í Borgarnesi. Stefnt er að því að afhending rekstrarins fari fram um miðjan október nk. Í kjölfarið mun Húsasmiðjan breyta verslun KB í Borgarnesi í Húsasmiðjuverslun með stórauknu vöruúrvali og fjölbreyttri þjónustu en Húsasmiðjan hefur á boðstólum yfir 80 þúsund vörutegundir í verslunum sínum.

KB hefur um áratugaskeið rekið byggingavöruverslun í Borgarnesi en hættir nú þeirri starfsemi. KB mun hins vegar áfram reka búrekstrarvörudeild með sama sniði og verið hefur.

Húsasmiðjuverslunin verður staðsett í verslunarhúsnæði KB Byggingavara, sem er nýtt og glæsilegt 2000 fm. hús við Egilsholt. Að auki fylgir versluninni mikið útisvæði sem Húsasmiðjan mun nýta til að stórauka vöruframboð í timbri og annarri þungavöru til hagsbóta fyrir verktaka, fagmenn, sumarbústaðaeigendur og aðra viðskiptavini á svæðinu. Að sjálfsögðu verður verð í Húsasmiðjuversluninni í Borgarnesi það sama og í öllum öðrum verslunum Húsasmiðjunnar um land allt.

Í tilkynningu frá Húsasmiðjunni segir að á meðal átta starfsmanna verslunarinnar í Borgarnesi, sem allir munu halda störfum sínum, eru fagmenn sem eru reiðubúnir að veita ráðgjöf við val á byggingarefni og meðferð þess. Rekstrarstjóri verslunarinnar verður eftir sem áður Valdimar Björgvinsson.

Húsasmiðjan er stærsti söluaðili byggingavara á Íslandi og verður Húsasmiðjuverslunin í Borgarnesi sú 18. í röð Húsasmiðjuverslana um land allt.