Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,5% og er 5.300 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan nam 3,9 milljörðum króna.

Norska vísitalan OBX hækkaði um 1,6% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 1,7%. Danska vísitalan OMXC lækkaði um 0,5%, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Flaga Group [ FLAGA ] hækkaði um 41,1% í 8,2 milljón króna veltu en félagið gaf frá sér jákvæða afkomuviðvörun í gær og tilkynnti um hugsanlega afskráningu.

Exista [ EXISTA ] hækkaði um 2,7%, Kaupþing [ KAUP ] hækkaði um 2,5%, Landsbankinn [ LAIS ] hækkaði um 1,3% og FL Group [ FL ] hækkaði um 1,2%.

Teymi [ TEYMI ] lækkaði um 4%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] lækkaði um 0,9%, Össur [ OSSR ] lækkaði um 0,7%, Icelandair Group [ ICEAIR ] lækkaði um 0,4% og Föroya banki [ FO-BANK ] lækkaði um 0,4%.