Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 403,7 stig í nóvember og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,7%. Á síðustu 6 mánuðum hefur hún hækkað um 2,8% og síðastliðna 12 mánuði hefur vísitilan um 6,9%. Á síðustu tveimur árum hefur vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaðum tæp 13%.