Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur hækkað um 4,65% það sem af er degi. Velta með bréf félagsins þegar þetta er ritað hefur verið 483 milljónir króna. Gengi bréfa félagsins hækkaði talsvert eftir helgi, í kjölfar þess að fyrirtækið birti jákvæðar tölur yfir farþegaflutninga fyrir júnímánuð . Kaupgengi hvers bréfs félagsins er nú 15,7 krónur. Gengi bréfa félagsins hækkaði um 3,79% síðastliðinn föstudag .

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,19% þegar þetta er ritað og hefur verið nokkur viðskipti með bréf Marels, en þau hafa hækkað um 1,31% í 277 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa HB Granda hafa hins vegar lækkað um 0,61% í 55 milljón króna viðskiptum.