Hlutabréf Icelandair hafa lækkað um 2,13% í fyrstu viðskiptum morgunsins í Kauphöll Nasdaq á Íslandi, í kjölfar frétta um að félagið geri ekki ráð fyrir Boeing 737 Max flugvélunum í sumaráætlun sinni .

Icelandair sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem greint var frá þessu, í kjölfar þess að Boeing greindi frá því í gærkvöldi að MAX vélarnar, sem hafa verið kyrrsettar frá því í mars myndu ekki taka á loft fyrr en um mitt þetta ár .

Í tilkynningu Icelandair segir að vegna ráðstafanna sem Icelandair hefur þegar gripið til verði áhrif á útgefna flugáætlun félagsins óveruleg. Ástæða þess sé að flugáætlunin hafi verið sett upp með það að leiðarljósi að takmarka áhrif vegna frekari tafa á afléttingu kyrrsetningarinnar. Icelandair hefur nú bætt við þriðju Boeing 737-800 vélinni en félagið hafði áður greint frá því að búið væri að leigja inn tvær vélar af þeirri tegund og að unnið væri að leigu á þeirri þriðju. Þá munu fleiri Boeing 757 vélar verður lengur í flota félagsins en áður var gert ráð fyrir.