Icelandair og SAS tilkynntu í dag að félögin hafa samið sín á milli um samstarf.

Samningurinn felur meðal annars í sér að flug SAS frá nokkrum borgum Evrópu verða samkennd Icelandair.

Tilkynningin í heild:

Icelandair og SAS tilkynntu í dag að félögin hafa samið sín á milli um margháttað samstarf sem einkum snýr að samkenndum flugum og gagnkvæmum réttindum fyrir vildarklúbbsfélaga.

Samningurinn felur í sér að frá og með 8. nóvember verður flug SAS frá Kaupmannahöfn og Stokkhólmi til Berlínar, Gautaborgar, Hamborgar, Mílanó, Munchen, Vilnius, Zurich og Varsjár samkennt (á ensku codeshare) með Icelandair, sem tryggir þægilegri tengingar og þjónustu milli Íslands og þessara áfangastaða.

Í samningnum er einnig kveðið á um samstarf vildarklúbba félaganna og stefnt að því að snemma árs 2011 muni félagar í Vildarklúbbi Icelandair geta nýtt vildarréttindi sín í EuroBonus klúbbi SAS, jafnframt því sem viðskiptavinir SAS öðlist samskonar réttindi í Vildarklúbbi Icelandair.

„Þessar bættu tengingar og þjónusta eru góðar fréttir fyrir viðskiptavini Icelandair. Við getum nú boðið betri þjónustu og við fögnum því að auka samstarf okkar við SAS með þessum hætti", segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.