Jón Ingi Árnason hefur hafið störf sem sjóðstjóri hjá Landsbréfum hf. Frá árinu 2009 hefur hann starfað hjá og verið meðeigandi J Bond Partners þar sem hann stýrði meðal annars J Bond Fund, veitti fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf vegna fjármögnunar og ráðgjöf vegna viðskipta með skuldabréf.

Á árunum 2007 til 2009 starfaði Jón Ingi sem forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Íslandsbanka/Glitnis og sem verðbréfamiðlari hjá Íslandsbanka á árunum 2004-2007. Á árunum 2000 til 2004 starfaði Jón Ingi hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum.

Jón Ingi er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.