Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, sakar Tryggvi Gunnarsson umboðsmann Alþingis um að grafa undan embætti sínu með þátttöku í sem Jón Steinar segir vera tilefnislausa aðför að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu heldur Jón Steinar því fram að umboðsmaður hafi gerst liðsmaður í flokki ófagnaðarmanna og það sé „eins og embættismaðurinn vilji koma höggi á ráðherrann”.

Tilefni skrifa Jóns Steinar er að umboðsmaður hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá innanríkisráðherra varðandi samskipti innanríkisráðuneytisins og lögreglustjórans í Reykjavík vegna rannsóknar á lekamálinu svokallaða.

Í greininni segir m.a.

„Menn skulu taka eftir því að umboðsmaðurinn mun búa sér til mál á hendur ráðherranum úr þeim efnivið sem hann þykist hafa. Þetta mun hann gera þó að fyrir liggi upplýsingar um að hann hafi ekki talið nokkra ástæðu til að taka upp „að eigin frumkvæði“ athugun máls vegna afskipta fyrri ráðherra dómsmála af rannsókn sakamála; afskipta sem klárlega samrýmdust ekki lögum.“

Í greininni víkur Jón Steinar einnig að fyrsta umboðsmanni alþingis.

„Sá lögfræðingur sem fyrstur gegndi þessu embætti, eftir stofnun þess á árinu 1987, aflaði því almennrar virðingar, enda var þar á ferð einhver vandaðasti og virtasti lögfræðingur þjóðarinnar, Gaukur Jörundsson, sem nú er látinn. Það hefði orðið honum þungbært að sjá hvernig sá sem nú gegnir þessu embætti notar það í pólitískum hráskinnaleik sem hann sjálfur hefur valið að taka þátt í.”