Breska dagblaðið The Birmingham Post hefur valið 629 milljón punda yfirtöku Bakkavarar á breska matvælafyrirtækinu Geest viðskipti ársins 2005.

Dómnefndin taldi stærð yfirtökunnar og að ráðgjöf vegna kaupanna hefði alfarið verið í höndum fyrirtækja frá Birmingham ráða úrslitum.