Kauphöllin vísaði 20 málum til Fjármálaeftirlitsins (FME) til frekari skoðunar í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni sem árlega tekur saman yfirlit eftirlitsmála. Í fyrra afgreiddi Kauphöllin 84 mál en þá var vinnslu eins máls enn ólokið við árslok.

Af málunum 84 afgreiddi Kauphöllin 68 mál vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði (upplýsingarskyldueftirlit). Málin voru afgreidd með mismunandi hætti; með athugasemdum (15), óopinberri áminningu (8), opinberri áminningu (19), en þar af var 16 málum lokið með févíti.

Skuldabréf eins útgefenda voru tekin úr viðskiptum að frumkvæði Kauphallarinnar. Þá voru 9 mál áframsend til FME. 16 mál voru felld niður.

Þá kemur fram að alls voru 16 mál sem lúta að viðskiptum með verðbréf (viðskiptaeftirlit) afgreidd. Af þeim voru 4 mál afgreidd með athugasemdum og 11 mál áframsend til FME til frekari skoðunar. 1 mál var fellt niður.